• 00:02:32Queer Situations: Upplestur
  • 00:07:25Queer Situations: Fræðafyrirlestrar
  • 00:23:46Herbergi Giovanni

Bara bækur

Queer Situations, hinsegin fræði og Herbergi Giovanni

Efni þáttarins í dag er hinsegin, í brennidepli eru hinsegin bókmenntir og fræði. Splunkuný bókmenntahátíð, Queer Situations, setti svip sinn á vikuna sem leið. Á þessari stuttu hátíð var stórglæsileg dagskrá sem ég ætla reyna gera sem mest skil í þessum þætti og eitthvað í komandi þáttum. Hingað komu nokkur þeirra sem þykja mest spennandi rithöfundar hinsegin bókmenntasenu samtímans á vesturlöndum, t.a.m. Maggie Nelson og Ia Genberg. Höfundarnir sátu fyrir svörum, lásu upp og röbbuðu við gesti. Við mælum aðeins hitastigið á upphafi hátíðar. Og svo verður líka fjallað um risa í bandarískum hinsegin bókmenntum á 20. öld, James Baldwin. Fyrsta íslenska þýðingin á verkum hans er komin út, það er hans þekktasta skáldsaga, Giovanni’s Room eða Herbergi Giovanni eins og hún heitir í glæsilegri þýðingu Þorvaldar Kristinssonar.

Viðmælendur: Sólveig Ásta Sigurðardóttir, Unnur Steina K. Karls og Þorvaldur Kristinsson

Lesarar: Þorvaldur Sigurbjörn Helgason (eigin ljóð) og Felix Bergsson (úr Herbergi Giovanni)

Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Frumflutt

24. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Bara bækur

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,