Kvöldfréttir útvarps

Heilbrigðisráðherra skilur óánægju og kennarar undirbúa verkföll

Heilbrigðisráðherra segist skilja óánægju með fyrirkomulag niðurgreiðslu brjóstaskimana. Fólk í áhættuhópi fyrir brjóstakrabbameini fær brjóstaskimun ekki niðurgreidda eins og þau sem eru einkennalaus.

Trúnaðarmenn félags framhaldsskólakennarar hafa þungar áhyggjur af pattstöðunni í kjaradeilu félagsins við ríkið. Undirbúningur er hefjast fyrir ótímabundin verkföll í ákveðnum framhaldsskólum.

Dómsmálaráðherra segir lögregluna hafa verið of fáliðaða alltof lengi. Markmiðið fjölga lögreglumönnum um fimmtíu á þessu ári.

Donald Trump sver embættiseið sem forseti Bandaríkjanna á mánudag. Athöfnin verður innandyra þar sem spáð er hörkufrosti í Washington.

Tæplega 100 skjálftar, yfir einum stærð, hafa mælst á miklu dýpi við Grjótárvatn á Snæfellsnesi það sem af er janúar. Það er sambærilegt því sem mældist allan desember.

Frumflutt

17. jan. 2025

Aðgengilegt til

17. jan. 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,