Kvöldfréttir útvarps.

Stjórnsýsluúttekt samþykkt á vöruhúsinu og utanríkisráðherra í Úkraínu

Borgarstjórn samþykkti í dag gera stjórnsýsluúttekt á aðdraganda þess umdeilt vöruhús var reist rétt fyrir utan glugga fjölbýlishúss í Breiðholti. Íbúi segir það gott fyrir framtíðina en ekki hjálpa í þessu máli.

Utanríkisráðherra er stödd í Úkraínu í vinnuheimsókn um þessar mundir og fundaði meðal annars með utanríkisráðherra Úkraínu í dag. Hún segir ekki ástæðu til halda Donald Trump muni hafa slæm áhrif á þróun stríðsins.

Tundurdufl fannst í veiðarfærum í skuttogaranum Björgu EA fyrir hádegi í morgun þegar skipið kom til hafnar á Akureyri. Hluti hafnarinnar, nærri Útgerðarfélagi Akureyringa, var rýmdur og lögregla kom upp lokunarpóstum sitthvoru megin við skipið

Hátt á þriðja þúsund hagræðingartillögur hafa borist frá almenningi eftir ákall forsætisráðherra. Gervigreind verður meðal annars notuð til flokka tillögurnar og vinna úr þeim.

Frumflutt

7. jan. 2025

Aðgengilegt til

7. jan. 2026
Kvöldfréttir útvarps.

Kvöldfréttir útvarps.

Fréttir

Þættir

,