Halli á ríkissjóði eykst, vímuefnaráðgjöf í HA, spilling í Úkraínu, borgarstefna og EES-samningur
Hallarekstur ríkisins á næsta ári verður tíu milljörðum meiri en upphaflegt fjárlagafrumvarp gerði ráð fyrir. Formaður fjárlaganefndar segir það betri niðurstöðu en óttast var í fyrstu.
Nám í vímuefnaráðgjöf verður í boði í fyrsta sinn í Háskólanum á Akureyri næsta haust. Heilbrigðisráðuneytið hefur samið við skólann um 10 milljóna styrk vegna undirbúnings.
Úkraínuforseti fyrirskipaði þvingunaraðgerðir gegn bandamanni sínum vegna umfangsmikils spillingarmáls í orkugeiranum. Þýskalandskanslari segir Úkraínu þurfa að efla spillingarvarnir sínar.
Alþingi samþykkti í síðasta mánuði þingsályktunartillögu um borgarstefnu fyrir Ísland sem stuðlar að þróun og eflingu tveggja borgarsvæða á landinu, höfuðborgarsvæðisins og Akureyrir og nágrennis.
Fari svo að Ísland fái ekki undanþágu frá tollverndaraðgerðum ESB mun það óhjákvæmilega hafa áhrif á samband og samstarf Íslands og Evrópusambandsins.