Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Kvöldfréttir 8. febrúar 2026

Áköf jarðskjálftahrina stendur yfir á Reykjaneshrygg. Náttúruvársérfræðingur segir að þær gætu verið orðnar algengari vegna aukinnar spennu á Reykjanesskaga.

Helsti ráðgjafi forsætisráðherra Bretlands sagði af sér í dag. Ekki er víst að það sé nóg til að létta þrýstinginn af ráðherranum sjálfum.

Það eru jákvæðar fréttir að lánshæfi ríkissjóðs hafi verið hækkaði í vikunni að mati viðskiptafræðiprófessors. Hann býst þó ekki við miklum beinum áhrifum á lánakjör hins opinbera.

Þyrla er nú notuð við hreindýratalningar og á þátt í að hægt var að auka kvótann. Reyna á að samræma sjónarmið þeirra sem vilja stækka stofninn til að auka veiðar og þeirra sem vilja halda honum í skefjum.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,