Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Deilur í Flokki fólksins, innviðafélagið Göng og brú, Straumsvíkurmálið, árásargirni Rússa

Guðmundur Ingi Kristinsson segir að Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hafi viljað að hann segði af sér ráðherraembætti eftir að hann gekkst undir hjartaaðgerð í vetur. Hann segir tímasetninguna, á þriðja degi jóla, hafa slegið sig.

Fjármálaráðherra segir að tilkoma innviðafélagsins Ganga og brúar veiti vegfarendum valkostinn að flýta för sinni með greiðslu á veggjöldum líkt og Hvalfjarðargöngin gerðu á sínum tíma. Áform félagsins voru kynnt fyrir fjárfestum í dag.

Níu karlmenn eru ákærðir í tengslum við Straumsvíkurmálið svokallaða. Þeir eru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot, en þeir smygluðu yfir 100 kílóum af kókaíni til landsins.

Forsætisráðherra Póllands, segir Rússa hafa í hyggju að ráðast með drónum og eldflaugum á bandamenn Úkraínu. Leyniþjónustugögn bendi til þessa.

Umsjónarmaður: Þorgils Jónsson. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,