Utanríkisráðherra um afarkosti Trumps gegn Íran, vatnavextir í Skagafirði og 3000 eldingar
Það er ekki fallegur heimur þar sem þeir stóru ætla sér að ráða og hafa sitt í gegn óháð öllu og öllum segir utanaríkisráðherra um úrslitakosti Bandaríkjaforseta í stríði við Íran.
Eldingaveðrið sem gekk yfir sunnavert landið í gær var óvenju mikið að sögn jarðeðlisfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Hátt í þrjú þúsund eldingar mældust.
Sérfræðingur Vegagerðarinnar harmar stuttan fyrirvara á næturlokun Hvalfjarðarganga næstu vikurnar en framkvæmdirnar séu tímabærar og umfangsmiklar.
20 Íslendingar sem áttu flug frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur í gær eru fastir í Færeyjum. Farþegi segist hafa fengið litlar upplýsingar frá Icelandair.