Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Jaðarflokkar fagna í Þýskalandi, aukið aðgengi að akstursíþróttum, fagráð um öryggi á Sólheimajökli

Flokkarnir lengst til hægri og vinstri fögnuðu sigri í fylkiskosningum í Þýskalandi í dag. Flokkur kanslarans er hársbreidd frá að þurrkast út af þingi eins sambandslandanna.

Íþróttir eru besta forvörnin, segir forseti ÍSÍ, sem vill sporna við ofsaakstri í umferðinni með auknu aðgengi ungs fólks að akstursíþróttum.

Nýtt fagráð um öryggismál á Sólheimajökli hefur tekið til starfa. Veðurstofan varaði við hættulegum aðstæðum þar í sumar.

Innviðaráðuneytið íhugar að deila upplýsingum með fyrirtækjum sem rukka bílastæðagjöld – til að koma í veg fyrir að hreyfihamlað fólk sé rukkað, þrátt fyrir að eiga rétt á að leggja frítt.

Tveir þýskir karlmenn voru handteknir í Louvre-safninu í París eftir að þeir hengdu tvö málverk á vegg sýningarsalarins þar sem Mona Lisa er til sýnis.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,