
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á mögulegum brotum Ölgerðarinnar snýst meðal annars um samninga við veitingastaði, bari eða hótel - sem eiga að tryggja að aðeins Ölgerðin fái að selja drykki sína þar.
Utanríkisráðuneyti og forsætisráðherra Ísraels fordæma að mannréttindalögfræðingurinn Navi Pillay hljóti friðarverðlaun Nóbels og saka hana um að skrímslavæða gyðinga.
Logi Einarsson menningarráðherra er ánægður með að Anne Carson fái Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Hann er ekki viss um hvort verðlaunaféð sé skattskylt.
Rannsóknir benda til þess að mæður í fæðingarorlofi upplifi sig oftar einmana en áður.
Æfingagjöld standa ekki undir kostnaði við rekstur barna- og unglingastarfs íþróttafélaga. Kröfur foreldra um gæði æfinga og þjálfunar geta farið fram úr hófi, segir prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík.

Fréttir