Ákært fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Reykholti, úthaldsstríð í Mið-Austurlöndum og klofningur hjá borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokks
Fimm karlar og ein kona hafa verið ákærð fyrir sérstaklega hættulega og stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og rán í Reykholti fyrir tveimur árum.
Drápið á æðsta klerk Írans býður upp á að Íranir svari Bandaríkjamönnum og Ísraelum í sömu mynt, að mati hernaðarsagnfræðings. Allt útlit er fyrir að átök í Mið-Austurlöndum harðni enn.
Afturköllun kvótasetningar á grásleppu var samþykkt á Alþingi í dag. Á næsta fiskveiðiári verða veiðar á grásleppu því aftur byggðar á sóknardögum.
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins klofnaði í umræðum um Borgarlínu. Borgarfulltrúi sem sat hjá við atkvæðagreiðslu um tillögu oddvitans segir þó vart hægt að tala um klofning – margar skoðanir rúmist innan flokksins.