Ekki óeðlilegt að leita til dómstóla, segir forstjóri Norðuráls
Forstjóri Norðuráls segir eðlilegt að ágreiningur við Orkuveituna, varðandi niðurfellingu á greiðslu fyrir orku til álversins vegna bilunar, fari fyrir dómstóla. Hann ítrekar að fyrirtækið ætli ekki að segja upp starfsmönnum.
Spillingarmál sem er til rannsóknar í Úkraínu er talið teygja sig til æðstu embætta og tveir ráðherrar hafa verið látnir fara. Stjórnarandstaðan vill að þingið fái að mynda nýja ríkisstjórn.
Lögmaður sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um tengsl við skipulagða glæpastarfsemi neitar alfarið sök, segir verjandi hans. Varðhaldið var framlengt um viku í dag.
Það hefði þurft að grípa fyrr inn í á Seyðisfirði vegna fækkandi starfa, að mati atvinnuvegaráðherra. Mikið högg segir forstjóri Síldarvinnslunnar en fyrirtæki þurfi að reka vel.
Upphafsleikur heimsmeistaramótsins í handbolta gegn Þýskalandi á morgun verður einn stærsti leikur sem kvennalandsliðið hefur spilað, að sögn þjálfarans.