Kvöldfréttir útvarps

ESB og útgerðin, neyðarbirgðir almennings, orkukrísa og loftslag,, jarðarför Björgvins Halldórsson

Ráðgjafafyrirtækið Arctica Finance telur áhrif aðildar Evrópusambandinu yrðu jákvæð fyrir stór íslensk sjávarútvegsfyrirtæki. þau fengju meðal annars tækifæri til enn frekari útrásar í Evrópu.

Einungis 20% landsmanna eiga neyðarbirgðir af mat og drykk ef upp kemur neyðarástand, og bara níu prósent eiga vatn til matseldar og hreinlætis. Þetta kemur fram í nýrri könnun.

Yfirmaður loftslagsmála hjá Evrópusambandinu segir orkukrísuna vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum góða ástæðu til hætta notkun jarðefnaeldsneytis. Útganga sameinuðu arabísku furstadæmana úr OPEC gæti þýtt enn meiri sveiflur í olíuverði.

Malarvegurinn milli Patreksfjarðar og Rauðasands er verulega illa farinn eftir veturinn. Ferðamenn veigra sér við aksturinn en von er á fjölda manns síðsumars sem vill berja augum almyrkva á sólu.

Björgvin Halldórsson tónlistarmaður var borinn til grafar frá Hallgrímskirkju í dag viðstöddu miklu fjölmenni.

Umsjón: Þorgils Jónsson

Tæknimaður: Kari Guðmundsson

Stjórn Útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Birt

28. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,