Kvöldfréttir útvarps

Brottvísunarstöð og drónabann

Brottvísunarstöð á Suðurnesjum tekur til starfa í desember. Frumvarp þess efnis var samþykkt á Alþingi í dag.

Ljósmyndarar landsins eru ósáttir við nýjar reglur sem banna drónamyndatöku á tugum friðlýstra svæða.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fellt niður mál sem tengjast meintum brotum gegn þremur börnum á leikskólanum Múlaborg.

Framkvæmdastjóri kirkjugarðaráðs segir grafreitum stærstu kirkjugarða landsins stórum hluta úthlutað. Það hagsmunamál bæði fyrir ríki og sveitarfélög bálfararhlutfallið aukist. Andlátum fjölgi um 100% á næstu 20 árum.

Landslið Íslands í fótbolta leika bæði gegn ríkjandi heimsmeisturum á næstu klukkutímum. Konurnar gegn Spánverjum og karlarnir gegn Argentínumönnum.

Birt

9. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,