Bless í bili!
Þessi síðasti þáttur fyrir sumarfrí er sannkölluð bókahátíð!
Hrafnhildur Hreinsdóttir skrifar bækurnar um Gling Gló sem eru orðnar fjórar talsins. Í hverri bók er tekin fyrir hjátrú sem Gling Gló kynnir sér ásamt vini sínum, Óbó, og ömmu sinni. Hrafnhildur segir okkur hvaða hjátrú er áhugaverðust og hvað er það eina leiðinlega við að gefa út bók, að hennar mati. Bókaormurinn Ísold talar meðal annars um nýjustu bókina um Gling Gló, Huldu Völu dýravin og bækur um krúttleg dýr.

Þættir um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar. Embla ræðir við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum.
Umsjón: Embla Bachmann