Bless í bili!
Þessi síðasti þáttur fyrir sumarfrí er sannkölluð bókahátíð!
Í þessum þætti af Hvað ertu að lesa? kanna Embla og Karitas bækurnar sem fylgja okkur í hjartanu frá barnæsku. Bók vikunnar er Ég heiti Blíðfinnur en þú mátt kalla mig Bóbó eftir Þorvald Þorsteinsson. Einn stærsti aðdáandi bókanna um Blíðfinn, Ágúst Elí Ásgeirsson, kíkir í heimsókn og bókaormurinn Ásgeir Atli segir hvernig honum fannst bókin. Karitas fer á stjá í útvarpshúsinu og spyr fullorðna fólkið sem vinnur á RÚV hvaða barnabók situr enn í þeim.

Þættir um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar. Embla ræðir við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum.
Umsjón: Embla Bachmann