Bless í bili!
Þessi síðasti þáttur fyrir sumarfrí er sannkölluð bókahátíð!
Í þessum þætti af Hvað ertu að lesa? fjalla Embla og Karitas um glæpasnillinginn Artemis Fowl. Þær fá þýðandann Guðna Kolbeinsson í heimsókn sem þýddi allar bækur Eoin Colfer um undrabarnið Artemis. Karitas kíkir á útgáfuhóf bókarinnar LÆK sem Gunnar Helgason og Bergrún Íris Sævarsdóttir skrifuðu með grunnskólabörnum í Reykjavík og bókaormurinn Ísak kíkir við í annað sinn.

Þættir um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar. Embla ræðir við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum.
Umsjón: Embla Bachmann