Bless í bili!
Þessi síðasti þáttur fyrir sumarfrí er sannkölluð bókahátíð!
Í þessum þætti af Hvað ertu að lesa? taka Embla og Karitas fyrir bókaflokk Birgittu Haukdal og þau Láru og Ljónsa. Birgitta kíkir við og ræðir um það hvaðan hugmyndin að bókunum kom og svarar spurningum bókaormsins Alexöndru Rutar sem þekkir sögurnar betur en flestir aðrir.

Þættir um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar. Embla ræðir við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum.
Umsjón: Embla Bachmann