Bless í bili!
Þessi síðasti þáttur fyrir sumarfrí er sannkölluð bókahátíð!
Í þessum þætti af Hvað ertu að lesa? halda Embla og Karitas upp á afmælið hennar Emblu sem er á morgun. Í tilefni dagsins fékk hún að velja bók vikunnar og Silfurlykillinn eftir Sigrúnu Eldjárn varð fyrir valinu. Sigrún kemur í heimsókn og ræðir við Emblu um bókina og ævistarfið sem mynd- og rithöfundur og bókaormurinn Bára María segir sína skoðun á bókinni.

Þættir um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar. Embla ræðir við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum.
Umsjón: Embla Bachmann