Víðsjá

Hallveig Rúnarsdóttir - Svipmynd

Hallveig Rúnarsdóttir kemur úr mikilli tónlistarfjölskyldu og vissi snemma hún myndi syngja mikið alla ævi. Hún ætlaði samt ekki endilega verða söngkona, langaði frekar verða leikkona og dreymdi um komast í Guildhall School of Music and Drama í London sem slík. En söngurinn tók yfir og Hallveig endaði í óperudeild skólans. Hún er oft spurð því hvort alþjóðlega óperusviðið hafi ekki heillað hana en dreymdi miklu frekar um verða alhliða söngvari. Það hefur sannarlega orðið úr, og verkefnalistinn er orðinn langur og fjölbreyttur, á um 33 ára ferli. Hallveig hefur sungið þó nokkur óperuhlutverk og kemur reglulega fram með Sinfóníuhljómsveit íslands. Hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins í sígildri- og samtímatónlist árið 2013 fyrir hlutverk sitt sem Michaëla í Carmen hjá Íslensku óperunni, og aftur árið 2018 fyrir hlutverk sitt sem Gilitrutt og söng sinn á Klassíkinni okkar með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún hefur verið sérstaklega virk í flutningi nýrrar tónlistar og er listrænn stjórnandi og stofnandi tónlistarhópsins Cantoque Ensemble, sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir flutning sinn. Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir er gestur Svipmyndar í Víðsjá dagsins.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Frumflutt

20. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,