Víðsjá

Sorgmæddar hurðir, Póst-Jón, Lexíurnar

Sýningin Making Sense í Ásmundarsal er samsýning sex listamanna sem vinna útfrá hugmyndum Vísindalista; En það er hugmyndafræði sem skoðar sameiginlega þætti listsköpunar og vísindarannsókna. Á sýningunni óma orgelflautur og fótboltaspark er rakið milli fjarða. Þar er dagbók úr stríði en líka lykt af hurðum sem ískra sorglega. Sunna Svavarsdóttir hélt úti rannsókn á þessum sorglega ískrandi hurðum og segir frá í þætti dagsins.

Í vetur kom út bókin Lexíurnar eftir Magnús SigurðssonSoffía Auður Birgisdóttir rýnir í bókina í þætti dagsins. En við hefjum þáttinn á leikhúsrýni. Póst-Jón er íslensk staðfæring sviðslistahópsins Óðs á gamanóperunni Le postillon de Lonjumeau eftir franska tónskáldið Adolphe Adam sem var frumsýnd í París 1836. Póst Jón var frumsýnd um liðna helgi í Þjóðleikhúskjallaranum og Trausti Ólafsson lét sig ekki vanta.

Frumflutt

21. mars 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,