Víðsjá

Duft, Aksturslag innfæddra og María mey

Skáldsagan Duft; söfnuður fallega fólksins, sem Bergþóra Snæbjörnsdóttir sendi frá sér á dögunum hverfist um líf Veróniku og ber truflaðra fjölskyldu hennar saman við vafasaman sértrúarsöfnuð. Í þætti dagsins mun Kristín María Kristinsdóttir, einn af bókmenntarýnum Víðsjár, segja frá verkinu. Gréta Sigríður Einarsdóttir, annar bókmenntarýnir þáttar er einnig á mælendaskrá. Í þetta skiptið rýnir hún í nýtt smásagnasafn Þórdísar Gísladóttur, Aksturslag innfæddra þar sem greint er frá atburðum sem gætu virst hversdagslegir og smávægilegir við fyrstu sýn en endurspegla stærri og flóknari hliðar tilverunnar. Og gefnu tilefni rifjum við upp viðtal Höllu Harðardóttur við Sigríði Guðmarsdóttur, guðfræðing frá því í mars um guðsmóðurina Maríu mey sem gjarnan birtist sem hrein og óflekkuð mær í ritum og listum en og þó kannski hafa heimildum um hana sem breyska manneskju bara ekki verið haldið á lofti.

Frumflutt

21. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,