Okkur barst stutt póstkort frá Steineyju Skúladóttur í Hljóðvegi 1 en hún hitti nokkra vaska pilta úr Bæjarvinnunni á Fáskrúðsfirði um helgina.
Í Noregi er í gildi rauð veðurviðvörun vegna gríðarlegs skýfalls og vinda. Óveðrið gekk yfir önnur lönd á Skandinavíuskaganum síðustu daga en í Noregi má búast við að veðrið hafi í för með sér aurskriður og aðrar skildar náttúruhamfarir. Við heyrðum í Atla Steini Guðmundssyni blaðamanni á Morgunblaðinu, sem er búsettur í Noregi.
Mikil uppbygging er fyrirhuguð í Þjórsárdal sem á að laða að ferðamenn á svæðið. Nýlega var fyrsta skóflustungan tekinn fyrir Fjallaböðin sem verður baðstaður og 40 herbergja hótel en einnig Gestastofa Þjórsárdals sem mun rísa í mynni Þjórsárdals. Umhverfis- og sjálfbærnisjónarmið eru höfð að leiðarljósi við alla uppbyggingu. Á dögunum úrskurðaði Skipulagsstofnun að uppbyggingin á svæðinu þurfi ekki að gangast undir umhverfismat eins og Umhverfisstofnun fór fram á. Magnús Orri Schram, framkvæmdarstjóri Fjallabaðana, kom til okkar til að segja okkur nánar frá þessari liðlega 8 milljarðar króna framkvæmd í Þjórsárdal.
Hinsegindagar eru hafnir og borgin iðar af lífi í tengslum við hátíðahöldin sem ná hápunkti á laugardag með gleði- og kröfugöngu hinseginfólks. Við ætlum að gera hinsegindögum rækilega skil í vikunni og fjalla um eitt málefni þeim tengdum á dag en við riðum á vaðið með því að ræða lagaleg réttindi íslensks hinseginfólks og stöðu mannréttindahópsins vítt og breytt um heiminn við Hönnu Katrínu Friðriksson þingflokksformann Viðreisnar
Það hefur meira en nóg verið að frétta af Heimsmeistaramóti kvenna í knattspyrnu. Í dag klukkan átta hófst leikur Kólumbíu og Jamaíka og klukkan ellefu mætast Frakkland og Marókkó í síðasta leik 16 liða úrslita mótsins þar sem bæði Bandaríkin og Þýskaland eru úr leik. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttakona kom og fór yfir íþróttir helgarinnar með okkur.
Í lok þáttar mætti Sævar Helgi Bragason svo galvaskur og ræddi geimverur við okkur.
Tónlist
HIPSUMHAPS - Lsmlí (Lífið sem mig langar í).
GOTYE - Somebody That I Used To Know.
HELGI BJÖRNSSON - Ég Skrifa Þér Ljóð Á Kampavínstappa.
DUA LIPA - Dance The Night.
BUBBI MORTHENS - Aldrei Fór Ég Suður.
BIRNIR - Spurningar (ft. Páll Óskar).