Við hófum daginn á því að hringja á vettvang á Reykjanesskaga og heyra frá viðbragðsaðilum þar sem eru í óða önn að undirbúa sig fyrir eina stærstu baráttu Íslandssögunnar gegn gróðureldum í kringum eldgosið við Litla Hrút. Einar Sveinn Jónsson slökkvistjóri í Grindavík var á línunni.
Bændasamtök Íslands hafa lýst yfir áhuga sínum á því að þingsályktunartillaga sem leyfir ræktun hamps, læknakannabis, verði að veruleika og settur verði á fót stýrihópur til að kanna vænleika þessarar ræktunar hér á landi. Vigdís Häsler framkvæmdastjóri Bændasamtakanna kom til okkar og ræddi afstöðu bænda til kannabisefna.
Að mati Hrannar Greipsdóttur, framkvæmdastjóra nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, er besta leiðin fyrir fyrirtæki til að vega upp á móti því að geta ekki boðið samkeppnishæf laun á markaði sú, að svokallaður kaupréttur sé til staðar innan fyrirtækisins, en með því geti starfsfólkið eignast hlut í félaginu. Þetta á sérstaklega við um nýsköpunarfyrirtæki sem eru að stíga sín fyrstu skref. Tryggð starfsfólks leikur líka lykilatriði í velgengni slíkra fyrirtækja. Hrönn kom og sagði okkur betur frá hugmyndinni um kauprétt og hverjir innan fyrirtækja ættu að geta eignast hlut í vinnustaðnum.
Bæjarhátíðin Mærudagar á Húsavík hefur verið haldin síðan 1995. Við forvitnuðumst um dagskránna og hringdum norður í Guðrúnu Huld Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra Mærudaga.
Við ræddum glæpasögur í lok þáttar. Páll Valsson rithöfundur og þýðandi kom til okkar til að ræða velgengni glæpasögunnar og hver séreinkenni þeirra sagna sem ganga best á alþjóðavettvangi eru.
Tónlist
FLOTT - Mér er drull.
ROLLING STONES - Jumpin' Jack Flash.
STJÓRNIN - Stjórnlaus.
HARRY STYLES - Sign Of The Times.
UNA TORFADÓTTIR - En.
Á MÓTI SÓL - Best.
PÁLL ÓSKAR - Stanslaust stuð.
EMMSJÉ GAUTI - Þúsund Hjörtu.