Við héldum áfram að taka stöðuna á þeim hátíðinum sem fara fram um verslunarmannahelgina. Neistaflug í Neskaupstað fagnar 30 ára afmæli í ár og við settum okkur í samband við Maríu Bóel Guðmundsdóttur sem er framkvæmdarstjóri Neistaflugs.
Líkamsleifar fjallgöngumanns sem hvarf nærri tindinum Matterhorn í Sviss árið 1986 fundust á dögunum þegar jökullinn, sem fjallgöngugarpinn var að þvera, tók að hopa vegna loftslagsbreytinga. Fréttin vekur upp spurningar um okkar eigin jökla og hvað gæti komið í ljós við frekari bráðnun þeirra. Eigum við von á því að finna jarðneskar leyfar fjallgöngufólks, flugvélabrök eða jafnvel fornminjar? Tómas Jóhannesson fagstjóri Veðurstofu Íslands í jöklafræði kom til okkar til að fjalla um ráðgáturnar undir jökli.
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra var gestur þáttarins. Við ræddum við hana um málefni hælisleitenda, sem hafa verið í deiglunni í vikunni, en einnig fyrstu daga hennar í embætti sem hafa verið vægast sagt hávaðasamir innan hennar eigin flokks, Sjálfstæðisflokksins.
Næsti staður í yfirreið okkar yfir hátíðir á landinu um verslunarmannahelgina var Siglufjörður. Þar fer fram hátíðin Síldarævintýrið á Siglufirði. Markmið hátíðarinnar eru fyrst og fremst tvö; að kynna og sýna allt það helsta sem Siglufjörður hefur upp á að bjóða og að gefa bæjarbúum tækifæri til að koma saman og eiga góðar stundir. Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðstjóri Fjallabyggðar, sagði okkur meira af hátíðarhöldunum.
Heimsmeistaramót íslenska hestsins fer fram í Hollandi í næstu viku. Heimsmeistaramótið er einn stærsti vettvangur íslenska hestsins um heim allan. Nítján þjóðir hafa keppnisrétt á mótinu og má búast við miklum fjölda gesta þá sjö daga sem það stendur yfir. Kristinn Skúlason, formaður landsliðsnefndar Landsambands hestamanna, er að gera sig klárann að fara utan og í mörg horn er að líta. Hann kom til okkar í lok þáttar.
Tónlist
STUÐMENN - Reykingar.
DAVID KUSHNER - Daylight.
ÁRSTÍÐIR - Let's Pretend.
COLDPLAY - Every Teardrop Is A Waterfall.
PÁLL ÓSKAR - Allt Fyrir Ástina.
PHIL COLLINS & PHILIP BAILEY - Easy Lover