Unglingalandsmót UMFÍ verður á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina en mótið hefur verið haldið frá því árið 1992 víða um land. Boðið er upp á 18 keppnisgreinar fyrir þátttakendur 11-18 ára og svakalegan fjölda af greinum sem ekki verður keppt í heldur fólki leyft að prófa og leika sér í. Tónleikar verða á hverju kvöldi með stjörnum landsins. Til að segja okkur frekar frá heyrðum við í Pálínu Ósk Hraundal en hún er verkefnastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ.
Körlum fer fækkandi í útivist á Íslandi að mati Róberts Marshall ferðagarps - eða að minnsta kosti í hlutfalli við konur sem hann segir að hafi átt í þögulli byltingu á fjöllum og náð hverju takmarkinu á fætur öðru. Hann hefur því sett á fót útivistarnámskeið, eða hreyfinga- og ævintýrabræðralag fyrir karla, sem nefnist Þjáningarbræður. Róbert kom til okkur að tala um kalla á fjöllum.
Stjórnvöld stefna ótrauð að því að þróa íslenska smágreiðslulausn, eins og greiðslukort, sem er óháð erlendum eigendum og áhrifum. Í Morgunblaðinu í gær er farið yfir umsagnir hagsmunaaðila á borð við Rapyd og Landsbankann sem gjalda varhug við þessum áformum og segja meðal annars að með þessu muni inngrip hins opinbera á markaði vera umtalsverð til þess að lækka kostnað á markaði. Við fræddumst um þessi áform og áhyggjur hagsmunaaðilanna við Gunnar Jakobsson varaseðlabankastjóra fjármálastöðuleika.
Íslendingar sem ferðast hafa til Bandaríkjanna þekkja vel hið mjög svo leiðitama ESTA kerfi, en án slíkrar ferðaheimildar er fólki ekki heimild för um landamærin. Nú stendur til að Ísland taki upp samskonar kerfi sem á að heita ETIAS og verður samtímis tekið upp í Rúmeníu, Búlgaríu og Kýpur. Við ræddum málið við Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar.
Já og í lok þáttar kom okkar allra besti Guðmundur Jóhannsson, tæknispekúlant Morgunútvarpsins, og leiddi okkur í allan sannleikann um nýjustu græjurnar, snjalllausnirnar eða ógnir internetsins.
Tónlist
EGILL ÓLAFSSON - Ekkert Þras.
SPICE GIRLS - Viva Forever.
HELGI JÚLÍUS & VALDIMAR GUÐMUNDSSON - Þú ert mín.
KRUMMI & SOFFÍA BJÖRG - Bona fide.
CAROLINE POLACHECK - Smoke.
KLASSART - Gamli Grafreiturinn.
THE DANDY WARHOLS - Bohemian Like You.
GRAFÍK - Húsið Og Ég.