Það var ansi ískyggileg frétt á Vísi í gær þess efnis að vísindamenn við Kaupmannahafnarháskóla hefðu komist að þeirri niðurstöðu að Golfstraumurinn gæti stöðvast árið 2025, eða hvenær sem er eftir þann tímapunkt, með algjörlega katastrófískum áhrifum bæði hérlendis sem erlendis. Vísindamönnum ber þó ekki saman um áreiðanleika þessarar rannsóknar og við ræddum málið við Steingrím Jónsson prófessor í hafeðlisfræði við Háskólann á Akureyri.
Brimbrettakappar landsins hafa miklar áhyggjur af stækkun hafnarinnar í Þorlákshöfn en við hlið hennar er ein besta alda Evrópu, falin náttúruperla við strendur Íslands. Steinarr Lár frá Brimbrettafélagi Íslands kom til okkar til að ræða undirskriftasöfnun félagsins um aukið samráð við bæjaryfirvöld í Þorlákshöfn.
Ásgeir Brynjar Torfason doktor í fjármálum er einn þeirra sem býður sig fram í stjórn Íslandsbanka. Hann hefur verið afar gagnrýninn á framkvæmd sölu bankans en etur nú kappi við frambjóðendur Bankasýslunnar sjálfrar sem fer með 40% atkvæðavægi þegar til stjórnarkjörsins kemur. Við ræddum við Ásgeir um Íslandsbanka, fyrirkomulag stjórnarkjörsins og tilurð þess að hann býður sig fram þegar fyrirkomulag stjórnarkjörsins er með þeim hætti sem það er.
Írska söngkonan Sinead O'Connor er látin, 56 ára að aldri. Sinead var mikill brautryðjandi og vakti athygli hvert sem hún kom, en hún hélt líka ógleymanlega tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík árið 2011. Grímur Atlason, tónleikahaldari stóð að þeim tónleikum og kom til okkar til að ræða um Sinead.
Og í lok þáttar hringjum við til Grikklands þar sem sannkallaðir vítislogar loga vítt og breitt um landið og eyjarnar. Gríðarlegur hiti hefur verið á Grikklandi og eyjan Ródos hefur verið rýmd vegna skógarelda sem virðast ætla að éta sig í gegnum allt sem þeir koma nálægt. Þóra Björk Valsteinsdóttir er búsett á Grikklandi og ræddi við okkur þaðan.
Tónlist
HJALTALÍN - Þú Komst Við Hjartað í Mér.
JOHN MAYER - Waiting On The World To Change.
Miley Cyrus - Jaded.
ROBBIE WILLIAMS - Feel.
FLOTT - L'amour.
SINEAD O'CONNOR - This is a Rebel Song (LIVE Fríkirkjan 2011)
SINEAD O'CONNOR - Nothing Compares 2 U.