Rokkland

Tindersticks - Massive Attack ofl.

Mest fer fyrir ensku hljómsveitinni Tindersticks sem er á leiðinni til landins til halda tónleika þriðjudaginn 29. október. Hljómsveitin er koma í þriðja sinn til íslands - Spilaði á Nasa 2008 og svo í Hljómahöllinn í Reykjanesbæ 2020.

Óli P. spjallað við Stuart Staples söngvara Tindersticks á Zoom um daginn um nýju plötuna, æskuna áhrifavalda, lagasmíðar og fleira.

Kris Kristofferson kemur líka við sögu í þættinum, Óli P. spjallaði við hann í síma fyrir 20 árum og við heyrum brot af því og brot frá tónleikunum hans í Laugardalshöll 14. Júní 2004 sem Rás 2 hljóðritaði. Kris lést síðasta sunnudag - 88 ára aldri.

Við heyrum líka aðeins í Leonard Cohen í Laugardalshöll sumarið 1988 og Robert Smith úr The Cure segir okkur örlítið frá væntanlegri plötu og nýja lagið þeirra Alone.

En við byrjum í grænum almenningsgarði í Bristol með Massive Attack.

Frumflutt

6. okt. 2024

Aðgengilegt til

8. okt. 2025
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í næsta haust eru 30 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,