Rokkland

OASIS snýr aftur

Hljómsveitin Oasis sprakk í loft upp í ágúst 2009 rétt áður en hún ætti stíga á svið á tónlistarhátíðinni Rock ein Seine í París. Síðan þá hafa bræðurnir í hljómsveitinni, lagasmiðurinn Noel Gallagher og söngvarinn Liam Gallagher ekki talast við - þar til núna nýlega og er kominn á friður milli bræðranna. Byssurnar eru þagnaðar stjörnurnar hafa raðað sér upp biðin mikla er á enda komið og sjáið þessu verður ekki sjónvarpað, sagði í fréttatilkynningu frá hljómsveitinni sem var birt á heimasíðu hennar 27. ágúst sl.

Þá var auglýst tónleikaferð um Bretland næsta sumar - 17. tónleikar í Wales, Skotlandi, Írlandi og Englandi, og það seldust meira en ein milljón miða í einum grænum. MIðasölukerfi fóru á hliðina og milljónir manna sem reyndu kaupa miða fengu enga miða. Það lítur út fyrir Oasis ætli túra um allan heim á næsta ári og kannski árin þar á eftir, og í dag er fyrsta plata sveitarinnar; Difinitely Maybe sem kom út 1994 á toppnum á breska vinsældalistanum. Safnaplatan Time Flies 1994-2009 er í þriðja sæti og í því fjórða er önnur plata Oasis - What´s the story morning glory sem kom út 1995.

Rokkland hefur fylgst vel með Oasis allt frá upphafi 1995 og í þætti vikunnar rifjum við upp brot úr gömlum þáttum og skoðum fyrstu árin í sögu þessarar kraftmiklu og merkilegu hljómsveitar frá Manchester á Englandi.

Frumflutt

8. sept. 2024

Aðgengilegt til

10. sept. 2025
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í næsta haust eru 30 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,