ok

Rokkland

Eru þetta bestu lögin 2024?

Í fyrsta Rokklandi ársins er boðið upp á lög sem eru kannski „bestu lög síðasta árs“ - en ekkert endilega – þetta er allt bundið við smekk þess sem hlustar – eða hvað?

Ólafur Páll ætlar samt sem áður að spila lög sem honum þykja standa uppúr eftir árið, – íslensk og erlend og honum til aðstoðar er Birgir Örn Steinarsson sem heldur úti ásamt félaga sínum tónlistarsíðu á Facebook sem heitir Nýleg íslensk tónlist. Hann setti líka saman lagalista á Spotify um áramótin með 100 íslenskum lögum sem honum finnst standa uppúr eftir árið og heitir íslenskt / best 2024.

Frumflutt

5. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
RokklandRokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,