Rokkland

Miðstöðin Grafarvogi - Ívar Klausen - Sonny Rollins RIP

Í Rokklandi dagsins komum við við á þremur stöðum-

Í seinni hlutanum kynnumst við starfsemi Miðstöðvarinnar í Grafarvogi, en Miðstöðin er einskonar school of rock Í Grafravogi. Skólameistari Miðstöðvarinnar er Ólafur Elíasson píanóleikari og kennari en hann hefur innréttað iðnaðarhúsnæði sem er í senn ævingahúsnæði fyrir hljómsveitir hljóðver tónlistarskóli og félagsmiðstöð fyrir ungt fólk sem ætlar sér vera í músík og vera í hljómsveit.

Miðstöðin hefur alið af sér hljómsveitir eins og White Signal Karma Brigade 5K sem spilar meðal annars á Kaleo tónleikunum á Þingvöllum og Dóraog Döðlurnar. Rokkland heimsótti Miðstöðina í vikunni.

Saxófónleikarinn Sonny Rollins lést í vikunni sem leið og Sigurður Flosason segir okkur aðeins frá Sonny Rollins sem var einn af þeim allra bestu og mikilvægustu við höfum öll heyra hann spila án þess kannski hafa pælt í því.

En byrjum á Ívari Klausen (Ívar Andri Klausen) sem var senda frá sér sína fyrstu sólóplötu um daginn. Ívar er austan tók þátt í Músíktilraunum á sínum tíma með hljómsveitinni Dopamine Machine, er spila með hinum og þessum og er búinn vera bassaleikari í MÚR árum saman.

Birt

31. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,