Rokkland

Akranes krú - Tíbrá - Gaddavír - Bubbi - Falinn Gjóður

Hljómsveitin Tíbrá frá Akranesi er jafn gömul U2 var stofnuð árið 1976 og hefur verið starfandi með hléum síðan þá en var öflugust milli 1980 og 1990.

Núna næsta laugardag ætlar Tíbrá fagna 50 ára afmæli með tónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi og Rokkland fór og hitti þá Eirík trommara og Flosa hljómborðsleikara á æfingu í vikunni!

Rokkland spjallaði líka lítillega við sigursveit Músíktilrauna eftir sigurinn í Hörpu um daginn. Þetta eru þrír stákar í 10unda bekk sem kalla sig Galinn Gjóður og þeir hlusta aðallega segja þeir á Frank Zappa og Þursaflokkinn.

Halldór Gunnars Pálsson segir okkur frá nýja laginu hans Bubba sem kom út í gær og heitir Við föllum og Halldór er líka hljómsveutarstjóri Bubba á afmælistónleikunum sem verða í Laugardalshöll 6. Júní.

Svo er það grjótmulningsvélin frá Akranesi hljómsveitin Gaddavír sem sigraði í Wacken Metal Battle 2025 og tók þátt í Músíktilraunum fyrir áratug.

Gaddavír fór út til þýskalands til spila á Wacken Open Air ásamt hljómsveitum frá 30 öðrum löndum í fyrra og var líka senda frá sér plötuna Akranes krú. Brynjólfur Þór Guðmundsson Skagamaður og fréttamaður hér á RÚV er Wacken maður og hann ræddi við Gaddavír fyrir Rokkland.

Birt

19. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,