Rokkland

Öskudagar U2 - Elvis - Rosalía og Fela Kuti

U2 fær stærsta plássið í Rokklandi vikunnar en þessi gamla og merkilega hljómsveit frá Dublin sem á hvorki meira minna en 50 ára afmæli í ár sendi algjörlega óvænt frá sér sér 6 laga plötu á Öskudag sem heitir einmity Days of Ash. Þessi plata er mikil fríðar-pólitík og ekki veitir okkur af þessa dagana en berjast fyrir friði tala fyrir honum og syngja um hann.

U2 aðdáendur skoða plötuna með umsjónarmanni lag fyrir lag: Hildur Eir Bolladóttir prestur á Akureyri, Jón Knútur Ásmundsson á Reyðarfirði, Illugi Jökulsson, Helga Vala Helgadóttir og Arnar Eggert Thoroddsen.

Svo ætlum við skoða Fela Kuti sem hlaut dögunum Grammy verðlaun fyirr avistarfið - Lifetime Achievement Award fyrstur Afríkumanna og næstum 30 árum eftir hann lést.

Við beinum sjónum Elvis myndinni sem er verið sýna í kvikmyndahúsum í borginni þessa dagana td. í kvöld. Baz Luhrman gerði þessa mynd sem er byggð upp á áður óséði efni frá árunum 1970-1972 mestu.

Olivia Dean var sigursælust á Bresku tónlistarverðlaununum (Brit Awards) sem voru afhent í Manchester í gærkvöldi. Björk var á svæðinu og steig á svið með vinkonu sinni Rosaliu sem hluta verðlaun sem „alþjóðlegur listamaður ársins“.

Birt

1. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,