Rokkland

TODMOBILE

Hljómsveitin Todmobile hlaut á dögunum heiðursverðlaun ÍTV fyrir framlag sitt til tónlistarlífsins á Íslandi í næstum 40 ár, en rætur hljómsveitarinnar liggja allt aftur til tímans þegar rokk í Reykjavík var verða til.

Þeir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Eyþór Laxdal Arnalds höfðu þekkst frá 6-7 ára aldri og fyrsta hljómsveitin hans Þorvaldar sem hét Exodus spilaði í Stundinni okkar. Skúli Sverris spilaði á bassa í Exodus og Björk Guðmundsdóttir söng. Eyþór Arnalds stal Björk svo úr Exodus og í Tappa Tíkarrass.

Seinna voru þeir Eyþór og Þorvaldur skólabræður í tónfræðideild Tónlistarskólans í Reykjavík og þriðja púslið í Todmobile framlínuna var svo söngkonan Andrea Gylfadóttir sem hafði slegið í gegn með hljómsveitinni Grafík og hafði lokið prófi sem óperusöngkona frá Söngskólanum í Reykjavík með hæstu einkun.

Todmobile sló í gegn með fyrstu plötunni sinni- Betra en nokkuð annað sem kom út 1989 og þegar ÍTV voru afhent í fyrsta sinn árið 1994 fékk Todmobile næstum öll verðlaunin.

Hljómsveitin hefur verið starfandi með hléum allar götur síðan 1988 og á undanförnum árum hefur Todmobile einbeitt sér því halda stóra tónleika í stærstu tónleikahúsum landsins. Þau hafa fengið erlendar stórstjörnur til samstarfs við sig hetjur og átrúnaðargoð sérstaklega Þorvaldar Bjarna sem hefur mest verið við stýrið í Todmobile- Jon Anderson úr Yes og Steve Hacket úr Genesis - og núna síðast voru það Nik Kershaw Midge Ure úr Ultravox og Tony Hadley úr Spandau Ballet.

Þorvaldur Bjarni segir frá í Rokklandi vikunnar!

Birt

5. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,