Spánverjar sinna nú björgunarstarfi eftir mannskæðustu flóð seinni tíma þar. Við heyrðum í Erlu Maríu Huttunen sem býr í Valencia héraði, þar sem flóðin hafa verið, í gær. Þá voru þau fjölskyldan rafmagnslaus og vatn á þrotum. Við fáum að taka stöðuna í byrjun þáttar.
Félag íslenskra heimilislækna hefur sent á félagsmenn sína og stjórnvöld ályktun og tilmæli um að heimilislæknar muni ekki gefa út svokölluð „fit to fly“ vottorð fyrir hælisleitendur sem á að vísa úr landi. Þau telji þau það stríða gegn siðareglum lækna og mannréttindasáttmálum. Svanur Sigurbjörnsson fyrrverandi formaður Sifræðiráðs LÍ ræðir við okkur.
Björn Kristjánsson, sérfræðingur hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, verður gestur okkar fyrir átta fréttir þegar við ætlum að ræða sjálfkeyrandi bíla, en Tesla kynnti á dögunum slíka leigubíla, Cybercab. Í úttekt Morgunblaðsins í gær kom fram að Elon Musk, forstjóri fyrirtækisins, telji að kostnaður við sjálfkeyrandi bíla verði hverfandi og að ræða megi um einstaklingsmiðaðar almenningssamgöngur. Rekstrarkostnaður verði einungis um 17 krónur á kílómetrann.
Forystufólk stjórnmálaflokkanna mætast í kappræðum í sjónvarpssal í kvöld og við ætlum að hita upp fyrir þáttinn með Ólafi Þ. Harðarsyni, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, sem rýnir í möguleg átakamál og stöðu flokkanna.
Við förum síðan yfir fréttir vikunnar í lok þáttar eins og alltaf á föstudögum, í þetta skiptið með Oddi Ævari Gunnarssyni, fréttamanni á Vísi, og Birtu Björnsdóttur, yfirmanni erlendra frétta á RÚV.