Morgunútvarpið

Þjóðhátíð 150 ára, Inga Sæland um tillögu til breytinga á útlendingalögum, áhyggjur af vindorkuverum og tæknihornið

Öllu verður tjaldað til á Þjóðhátíð í Eyjum þetta árið enda á hátíðin 150 ára afmæli í ár. Ýmislegt verður gert til minnast tímamótanna. Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður þjóðhátíðarnefndar, var á línunni.

Dómsmálaráðherra sagði í samtali við okkur í gær Inga Sæland og Flokkur fólksins hefði gripið það sem hún sagði í Eldhúsdagsumræðum í júní og lagt fram eigin breytingatillögu á útlendingafrumvarpi og gagnrýnt sig og stjórnarmeirihlutann fyrir hafa ekki samþykkt þá tillögu. Lagatæknilegir gallar á tillögunni hafi komið í veg fyrir samþykki meirihlutans á því. Við heyrðum í Ingu Sæland.

Stofnað hefur verið til undirskriftalista þar sem skorað er á ríkisstjórn og Alþingi heimila ekki stóriðju í vindorku um heiðar, sveitir og strendur landsins. Þess er krafist löggjafinn skapi sterkan lagaramma svo orkuinnviðir þjóðar, framleiðsla og dreifing verði í almannaeigu til framtíðar. Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur er meðal þeirra sem fer fyrir undirskriftalistanum og kom til okkar.

Og við fengum Guðmund Jóhannsson til okkar með sitt hálfsmánaðarlega tæknihorn í lok þáttar.

Lagalisti:

Todmobile - Brúðkaupslagið

Sverrir Stormsker og Stefán Hilmarsson - Horfðu á björtu hliðarnar

Eyjaa - You only say you love me when you're drunk

Tame Impala - Let It Happen

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir - Töfrar

Terence Trent D'Arby - Wishing Well

Chappell Roan - Good Luck, Babe!

Karl Orgeltríó - Strútalógík

Flott - L'amour

Frumflutt

30. júlí 2024

Aðgengilegt til

30. júlí 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Þættir

,