Morgunútvarpið

Landsbjörg á vakt, átröskun, staðan á gosinu, leiðtogafærni, varað við netverslunum og tæknihorn

Mikið óveður gengur yfir víða um land. Við heyrðum í Jóni Þóri Víglundssyni hjá Landsbjörg og fengum heyra hvort reynt hafi á björgunarsveitir í appelsínugulri viðvörun.

Á undanförnum árum hefur alvarleg átröskun færst í aukana. Fleiri þurfa leggjast inn á spítala en áður og átröskun meðal barna hefur vaxið. Við ræddum málið við Karen Daðadóttur, sálfræðing og teymisstjóra átröskunarteymis á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, Guðrúnu Erlu Hilmarsdóttur, þroskaþjálfa og Elvu Björk Bjarnadóttur, næringarfræðing sem báðar starfa í teyminu.

Benedikt Ófeigsson jarðeðlisfræðingur frá Veðurstofu Íslands leit við hjá okkur og gefur okkur nýjustu tíðindi af gosinu.

þegar forsetakosningar eru afstaðnar, þar sem þjóðin valdi sér forystukonu, er ágætt skoða hvað einkennir góðan leiðtoga, forseta eða bara almennt þann sem veitir forystu hvort sem það í stjórnmálum, fyrirtækjum eða bara almennt í lífinu. Sigurður Ragnarsson, lektor við Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri og stjórnenda- og forystuþjálfari, fór aðeins yfir það með okkur.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun telur ástæðu til vara neytendur sérstaklega við vörum frá netverslunum utan Evrópu. Herdís Björk Brynjarsdóttir teymisstjóri markaðseftirlits hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun fór með okkur í saumana á því.

Í lok þáttar fengum við okkar hálfsmánaðarlega tæknihorn í boði Guðmundar Jóhannssonar.

Lagalisti:

Í svörtum fötum - Dag Sem Dimma Nátt

Baggalútur - Appelsínugul viðvörun

Una Torfadóttir - Þú ert stormur (Pride lagið 2023)

Laufey - From The Start

Dolly Parton - Jolene

GDRN - Háspenna

Jessie Ware - Pearls

Hljómar - Ég elska alla

Harry Styles - Satellite

Frumflutt

4. júní 2024

Aðgengilegt til

4. júní 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Þættir

,