Kvöldfréttir útvarps.

Bjarni Benediktsson hættir í stjórnmálum

Bjarni Benediktsson ætlar ekki setjast á þing og gefur ekki kost á sér til formennsku í Sjálfstæðisflokknum. Baráttan um formannssætið er hafin.

Landssamband veiðifélaga tekur undir með Húnabyggð sem hefur hafnað efnistöku sem spillt geti lífríki veiðiáa í sveitarfélaginu. Það of algengt tekið efni úr veiðiám án þess kanna áhrifin fyrirfram.

Átta létust í sjö aðskildum málum þar sem grunur var um manndráp árið 2024. Slík mál hafa aldrei verið fleiri ef litið er aftur til aldamóta.

Frelsisflokkurinn fékk í dag umboð til mynda ríkisstjórn í Austurríki. Flokkurinn er mjög hægrisinnaður þjóðernisflokkur og fékk flest atkvæði í þingkosningum síðasta haust.

Justin Trudeau sagði af sér sem forsætisráðherra Kanada og formaður frjálslynda flokksins á blaðamannafundi í dag. Hann hefur verið afar umdeildur innan flokks sem utan.

mathöll var opnuð á Glerártorgi á Akureyri fyrir jól. Rekstrarstjóri segir landsbyggðina vel geta bætt við sig mathöllum.

Frumflutt

6. jan. 2025

Aðgengilegt til

6. jan. 2026
Kvöldfréttir útvarps.

Kvöldfréttir útvarps.

Fréttir

Þættir

,