Haustið i garðinum
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Fræ tekin og hreinsuð. Meðferð á reyniberjum sýnd og hvernig þeim er sáð á haustin.
Einnig litið á garðljós og fjallað um val á garðlömpum.
Uffe Balslev, blómaskreytingamaður sýnir hvernig nota má haustlitar greinar í blómaskreytingar.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 17. október 1990.

Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.