Haustið i garðinum
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Það vefst fyrir mörgum að byrja á réttum enda. Rætt við Steinþór Einarsson skrúðgarðyrkjumeistara um heppilega verkaskipan í nýjum görðum sem grónum.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 23. maí 1990.

Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.