Haustið i garðinum
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Í þessum þætti eru íslenskar jarðvegstegundir til umræðu og þeir möguleikar sem þær bjóða,upp á;. mór, leir, sandur eða eitthvað þar á milli. Rætt við Ara Trausta Guðmundsson jarðfræðing og
Árna Benediktsson lífefnabónda. Leitast við að svara spurningunum um hver helstu áburðarefni eru og hvaða áhrif þau hafa.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 16. maí 1990.

Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.