Haustið i garðinum
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Í þessum þætti er farið i heimsókn til Þórhalls Jónssonar. Garðurinn hans er orðinn landskunn listasmiði. Garðar þurfa ekki að vera stórir
til að sköpunargerðin fái að njóta sín. Fyrir garðyrkjumanninn getur garðurinn verið hliðstæða léreftsins fyrir listmálarann.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 23. ágúst 1989.

Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.