Haustið i garðinum
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Heimsókn í pottaplöntusafn Garðyrkjuskóla ríkisins undir leiðsögn Kristínar Þórðardóttur garðyrkjufræðings og umsjónarmanns safnsins. Hún gefur góð ráð um val á pottaplöntum og umhirðu á veturna. Hafsteinn Hafliðason valdi sér fimm tegundir pottaplantna og talar um þær í lok þáttar.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 3. október 1990.

Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.