Haustið i garðinum
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Til eru menn sem ekkert láta aftra sér við að rækta garðinn sinn, þó skilyrðin séu á mörkum hins mögulega. Sigurður Eiríksson, eldhugi á Hvammstanga ræktar sín jólaepli sjálfur og einnig plómur. Einnig skoðuð skógrækt hans í þorpinu - fyrir opnu íshafi.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 30. maí 1990.

Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.