Haustið i garðinum
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Í Lónssveit austan Hornafjarðar stendur bærinn Hraunkot, dálítið utan alfaraleiðar. Umhverfi bæjarins er í senn stórbrotið og fagurt og ekki spillir gróðurvin sú sem húsfreyjan Sigurlaug Árnadóttir hefur lagt alúð og metnað sinn í um árabil. Garðurinn skoðaður og rætt við Sigurlaugu um ræktun hans.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 19. september 1990.

Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.