Haustið i garðinum
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Á Vestfjörðum eru víða fagrir garðar og sumir frægir svo sem Skrúður á Núpi ellegar Símonsgarður á Ísafirði.
Þingeyri er samt líklega vinin i eyðimörkinni. Þar ríkir almennur garðyrkjuáhugi og ræktunin setur svip sinn á þetta lognsæla sjávarpláss. Horfst er um í görðum og rætt við Guðrúnu Markúsdóttur og Skarphéðin Njálsson garðeigendur á Þingeyri.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 29. ágúst 1990.

Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.