Haustið i garðinum
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Í þessum þætti er fjallað um einær sumarblóm, tegundaúrval og valkosti. Undir lok þáttarins er litið inn í litla garðinn þar sem sett er upp létt skjólgirðing.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 8. ágúst 1990.

Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.