Haustið i garðinum
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Fjallað um trjágróður til skjóls og gefnar uppástungur um val heppilegra plantna í limgerði og lág skjólgerði.
Talað við Pétur Ólason í Gróðrastöðinni Mörk um blómstrandi skjólrunna og plöntun og formun birkilimgerða.
Einnig er rætt við Árna Bragason kennara á Hvanneyri um tilraunir og samanburð á víðitegundum Sýnd smíði á garðpalli.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 20. júní 1990.

Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.