Haustið i garðinum
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Rætt við Auði Sveinsdóttur, Áslaugu Traustadóttur, Guðmund R. Sigurðsson og Jón H. Björnsson landslagsarkitekta.
Sýndar fjórar mismunandi aðferðir við hönnun lítilla garða, en þeim hugmyndum verður fylgt eftir í komandi þáttum.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 25. apríl 1990.

Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.