Haustið i garðinum
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Í hópi garðyrkjuáhugafólks eru hjónin Stella Guðmundsdóttir og Róbert Arnfinnsson leikari. Við förum í heimsókn til þeirra til að þiggja góð ráð og Róbert sýnir okkur safnhauginn sinn og sitthvað fleira sem honum er til lista lagt.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 5. júlí 1989.

Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.