Haustið i garðinum
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Í þessum þætti er farið yfir eðli ýmissa trjátegunda sem völ er á hérlendis og sýnt hvers má vænta af þeim þegar þau eru orðin 30-100 ára gömul. Nauðsynleg vitneskja fyrir þá sem ætla að gróðursetja granna og veikburða trjáteinunga í garðinn sinn en gera sér ekki grein fyrir stærð þeirra þegar þeir stálpast. Um þetta er rætt við Jón Hákon Bjarnason skógræktarfræðing og skrúðgarðyrkjumeistara.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 22. ágúst 1990.

Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.